We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

S​ó​l án varma

by Sól án varma

supported by
mothmanterik
mothmanterik thumbnail
mothmanterik the best distilling of Icelandic black metal to date and has a haunting atmosphere. Dreadful but also uplifting at the same time. 10/10 album will strongly recommend for fans of atmospheric metal. Favorite track: Afbrigði XI.
Jeff Wilson
Jeff Wilson thumbnail
Jeff Wilson Easily some of the best Icelandic black metal out there. It's progressive, almost avant-garde, while remaining engaging. On every listen I find myself wanting to listen more and more, especially when I have to stop to go do something else. A gem that more people should be listening to. Favorite track: Afbrigði VII.
bmurator
bmurator thumbnail
bmurator Fantastic Icelandic Black Metal! This is somewhere between Árstíðir lífsins & Sjálfsmorð af Gáleysi. It is a little heavier than the first & a little less tortured than the second. Either way, it is stunning music & I highly recommend all of it!!!
more... more...
/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      €7 EUR  or more

     

1.
Afbrigði I 08:04
Í þeim eiginlega og efnislega heimi sem við túlkum sem raunveruleikann, er nú runnin upp sú stund sem við spáðum fyrir um og höfum beðið eftir með hinum mesta óhug og hryllingi. Dómur hefur verið kveðinn og er niðurstaðan sú að tíminn er á þrotum. Því höfum við engan möguleika á að stíga skref aftur á bak eða hopa. Engar bænir eða annar viðbúnaður geta veitt okkur lausn. Frelsun og friður af hvers kyns tagi eru utan seilingar. Við erum dæmd máttlaus og knésett fyrir fótum örlaga okkar. Allt mun falla.
2.
Afbrigði II 09:17
Sjáðu hvernig himnarnir opnast og hvernig eldi rignir niður er innsiglin öll eru rifin upp með rótum og sjáðu heimshöfin gufa upp og hvar fjallgarðarnir loga þá ég úr kaleiknum helli Ég sé hvar rætur trésins liggja rotnar og hvar hamar réttlætis klofnar þar sem höfuðskeljar hinna saklausu brotna Ég sé turnana falla, í fjarska hvar borgirnar brenna þar sem vægðarlaust svartnættið umlykur allt
3.
Eldurinn mun gleypa í sig allt efni og mun á endanum leysa jörðina og umheiminn upp í gufur. Kjarni sólarinnar mun draga að sér þessar gufur þar til ekkert situr eftir í hinu umlykjandi tómi. Mun kjarninn þá dragast inn í sig sjálfan þar til hann springur og þar með fæðir hinn nýja heim. Allt mun falla.
4.
Afbrigði IV 06:42
Inn í tómið ég stari Himnar af svörtu ófyrirgefandi og breiðir. Þeir neita mér um frest minna daga Hinn mikli aðallykill bræddur í hendi moldar og sjós. Blæðir á hendur þeirra sem sjá sannleika, falinn milli beina og holds neðan endurskins af blóði svo fersku innan veggja hugans, lykillinn opnar eina hliðið. Greiptur í örlög, þú sérð ei meir fyrr en of seint Brjótandi baug hins deyjandi huga Blik af kerti við eldstól kastar skugga af eyðilagðri veru andardráttur svo hægur augun spýta eldi sínum til einskis Þegar nærri, þá sést veran í réttu formi Formi hins sama og af reyk Undirmeðvitund bælir orðin sem í lokin tilheyra líkama og sál, að eilífu bundin þar sem lifir ekkert ljós, legg niður þinn líkama Þín gröf verður þessi jörð Þín gröf verður þessi jörð
5.
Afbrigði V 03:49
Himninum sundrað svo aldrei skín aftur sól ljósið sem okkur gaf líf mun ætíð framar vera hulið Ekkert lýsir upp vora hrörnandi jörð nema eldar og bál úlfanna Myrkrið hefur þúsund augu og skelfur við lofsöng hnífanna Svartar þokur og ský nú ríkja yfir öllu Mannvirki öll og stoðir sameinast öldum tímans Lífi og öllu handan þess er sundrað og brotið niður þegar líflínan er skorin og sigri er náð að fullu
6.
Afbrigði VI 05:30
Ekki í gylltum höllum, ljós þíns friðar ellegar í brenndum borgum er rísa á svörtum söndum þar í eyðimörkinni rísa líkneskin líkt og göndull Vána Afburðar úrkynjun Í guðlausri náttúrunni þar sem þú fellur á kné þér og drýpur höfði í duftið í óttablandinni lotningu frammi fyrir náttúrulausum Guði Yfirburðar afbrigði Fellur úr náð líkt og loftsteinn til jarðar sem kastar vægðarlausum skuggum yfir ösku hinnar föllnu sköpunar
7.
Máttugastur og mestur, myrkasti og versti veraldar dróttinn nálgast nú með ógnarhraða og stormar yfir alla veröld. Sólin sortnar, himnar brotna, vindar kólna, jarðir fölna, grös öll grána, húðir blána, bein mölvast, sálir glatast. Nú hefst endirinn, ögurstundin er nú runnin upp. Risinn er ég úr dvala mínum og stíg ég nú fram til að fylgja mínu verki. Allt verður gjört að engu í eilífðar svartnætti mínu og mun ég sem bylur og stórflóð jafna allt við jörðu og hana síðan gleypa. Ég hræðist enga djöfla eða engla heldur krjúpa guðir á kné fyrir mér. Ég er verri en allar martraðir manna og skaðlegri en allir harmar heimsins. Ég hremmi ávöxt jarðar í klær mínar og tæti í sundur skóga hennar og grundir. Já, verk mitt er það hinsta sem heimur þessi mun sjá. Harmar heimsins harma heiminn.
8.
Þögnin brotnar eins og vonir mannkyns þegar þrúgandi myrkur og reykur hvolfist yfir og eldhafið kviknar úr iðrum reyksins með djúpum drunum og brestum svo skerandi. Fjalldrangar molna og bergborgir hrynja og bráðna í kvikunni glóandi á meðan himininn brotnar inn í sig í dauðans sanna ljósi. Hraunið flæðir án afláts um sléttur og skóga og gjöreyðir öllu sem í vegi er á meðan flekar jarðar skiljast og skapa gljúfur svo djúp að botn sést ekki. Hafið og vötnin uppgufuð verða að súru regni sem steypist yfir gjörvallan heim og brennir hold og sinar svo sést inn að beini. Endalokin nálgast óðum er yfirborðið hverfur meira og meira uns ekkert er eftir nema öldumikið kvikuhafið sem engu eyrir nema bergjökum sem sökkva þegar allt tekur að falla. Endir heimsins er nú og nú allt skal enda. Allt skal enda.
9.
Afbrigði IX 04:55
Sól án varma Myrkið skín í draumhvolfi innan seilingar og sköpunin tvístrast Úr grárri þokunni loga skurðgoð fortíðar alelda minnisvarðar morknir og fúnir Mitt afl gegn allra mætti svo undurlítils gætti Var furða þó mér þætti sem því væri hent á glæ Fagurt er að líta á ljósgeislum er heim sé ég hverfa á himinásum Vonarstjörnu veikra manna Skundaði að skýbaki, brotinn maður í moldarfjötrum fram yfir líf lítur Heift míns hjarta hrífi þig á braut Með sárum þú sorgartölum, dapran dauða dregur mér um höfuð Því ótrúan eið hef ég svarið og fús geng helveg að hlið óvinar
10.
Afbrigði X 04:04
Allt mun falla.
11.
Afbrigði XI 03:45
Leiftra Þú, Sól, sem eyðir og elskar án varma, er við lítum inn í auga Þitt. Sex þúsund augu, gegn einu, sem gleymir engu, og geymir allt. Veit oss þinn ljóma, svo við megum aldrei gleyma, okkar illsku og gleymsku, sem ritaði fall mannkyns, í bók hinna brenndu. bókin sem ljómar, af brenndum syndum, líkt og illgresi, sem þráir að brenna, og verða að sinu. Við berum ösku hennar á enni okkar, og störum djúpt og hiklaust inn í sólarleg hins deyjandi guðs, sem brennur af dýrð og vitneskju um framtíð og fortíð. Við megum aldrei gleyma, þó við séum brunnin, að óupplýstur skugginn varð okkur að bana. Við lítum inn í dauðann, og málum hann fagran með geislum Þínum og varðveitum minninguna um bók hinna brenndu, því hún býr í sál okkar, og hún ferðast með ösku okkar, í umlykjandi faðm þinn, er samruninn er fullkomnaður. er samruninn fullkomnar okkur, á degi dóms og hreinsunar
12.

credits

released April 7, 2023

Production, recording and editing by D.G. at Gryfjan and Stúdíó Sýrland, 2019-2020.
Mixed and mastered by Jaime Gomez Arellano, Orgone Studios, 2021.
Sól án varma sigil by Metastazis.
Cover artwork by Costin Chioreanu.
Released by Ván Records in 2023.

license

all rights reserved

tags

about

Sól án varma Reykjavík, Iceland

contact / help

Contact Sól án varma

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this album or account

If you like Sól án varma, you may also like: